í Riga 
16.-19.09.2022 

Hér finnurðu frábæra blöndu af gömlu og nyju. Hér er sjór, hér eru vötn, skógar og óspillt náttúra. Í Lettlandi eru margir smærri bæir en aðeins ein raunveruleg borg, Ríga, höfuðborg landsins.

Á yfirborðinu virðist Riga kannski nokkuð róleg borg, en ef dýpra er kafað má finna fjölbreytta bari, nútímalistasöfn og fleiri áhugaverða staði. Þá má ekki gleyma veitingastöðunum, sem eru margir hverjir á heimsmælikvarða, og bjóða upp á rétti á afar sanngjörnu verði. Borgin er því tilvalinn áfangastaður fyrir hvern þann sem hefur yndi af að njóta ljúffengra veitinga í fögru umhverfi.
Riga er mikil dekurborg, þekkt fyrir að umvefja þá sem sækja heilsulyndir og snyrtistofur borgarinnar í slökun og andlitsböðum, nuddi og notalegheitum á hinum ýmsu snyrtistofum borgarinnar að ógleymdri ESPA heilsulindinni á hótelinu. 
Og svo er nauðsynlegt að prófa klassískt lettneskt bað! Á meðan aðrar þjóðir taka baðmenningu sína alvarlega, kemst engin á sama stað og Lettar, sem halda fast í fornar hefðir og saunaferðir eru þeim sem heilög stund. Svo má einnig finna skemmtileg bjórböð. Lettar eru mikil bjórþjóð, og láta sér ekki nægja að drekka hann sér til ánægju, því það er vinsælt að baða sig upp úr honum líka.

 Brottför - Föstudaginn 16.09.2022
Vinsamlega uppfærið þessa síðu reglulega þar sem hún er lifandi og upplýsingar geta breyst.

Flug

Flug fram og til baka með AirBaltic 1 innrituð taska 23 kg og handfarangurstaska (max 8kg -  55x40x23cm)

Allir eru með sæti, einungis þarf að greiða ef maður vill velja sér annað sæti.  Einnig er hægt að breyta um sæti án gjalds á flugvellinum.

Hægt er að innrita sig í flugið hér 72klst fyrir brottför https://www.airbaltic.com/en-ZZ/index
Bókunarnúmerið er P4BLQE - ATH ekki nota íslenska stafi.
Sama fyrir heimförina.  Þá er hægt að breyta um sæti og eða bæta við farangri gegn greiðslu.

Flug - 16.09.2022

Brottför frá Keflavík föstudaginn 16.sept kl.15:05 áætluð lending í Riga  kl. 21:45
Flugnúmer BT170.

Grímu-notkun um borð  er valkvæð.

Tíminn í RIGA + 3

ATH tímamismunur milli Íslands og Lettlands eru +3 klukkustundir.

Rútur á flugvellinum

Fararstjóri tekur á móti ykkur eftir töskuafhendingu þegar þið gangið út um tolla hliðið. 

Rútan er líka beint fyrir utan, flugvöllurinn er lítill og auðvelt að sjá rútuna fyrir utan, hún er merkt ykkur.

Akstur til Riga tekur um 20 mínútur miðað við góða og greiða umferð.

Gisting

Radisson Blu Latvija Conference & Spa **** - Innifalið er morgunverður, city tax og wifi.  

Morgunverður er alla daga frá kl 06:30 - 10:30 og til kl 11:00 um helgar.

Sjá neðar nánar um hótelið.


Tékk inn - tékk út

Tékk inn á hótelinu mun ganga hratt fyrir sig þar sem þið hafið útvegað okkur vegabréfsnúmerin ykkar.

Tékk út fyrir kl 11 á mánudeginum, gerið upp herbergin ykkar fyrir brottför.

Farastjóri

Áslaug Hersteinsdóttir 

Sími 785 9887

Verð í lobbý hótelsins alla daga kl 10:00 - 11:00 og 17:00-18:00

Laugardagur 17.09.


 19:00-00:00 - á 27.hæð
Njótið kvöldsins á efstu hæð hótelsins með úsýni yfir alla borgina


Ótakmarkaðir drykkir kl 19:00 - 00:00

Vatn Aqua Panna og San Pellegrinu
Djús appelsínu og epla
Gos, Kók, Kók Zero, Sprite og Tonic
Lettneskur bjór
Hvítvín og rauðvín
Bacardi, Russky Vodka, Bombay Gin og Jim Bean Whiskey

Kvöldverður
Fyrirfram ákveðinn matseðill hefur verið valinn fyrir hópinn.  Engin ofnæmi eða sérfæði eru skráð.

Steiktur hörpudiskur, blómkáls púrra, súr epli brúnað smjör pancetta

Nautasteik, graskersmauk, fondant kartöflur, sveppir og árstíðarbundið grænmeti

Súkkulaðimús með dökku súkkulaði og heslihnetum, hunangs og karamellusósa

Skemmtið ykkur vel!

 Heimför mánudaginn 19.09.2022

Hittingur í Lobbý - 10:50

Hittingur í móttökunni & tékk út, rútan leggur af stað 11:00  uppá flugvöll. 

Muna að tékka sig út af hótelinu tímanlega.

Flug - 16.09.

Heimför mánudaginn 16.09. kl 13:25 og lent í Keflavík 14:20
Flugnúmer BT169

Grímu-notkun um borð er valkvæð.

Flug 

Flug fram og til baka með AirBaltic 1 innrituð taska 23 kg og handfarangurstaska (max 8kg - 55x40x23cm)

Hægt er að innrita sig í flugið hér 72klst fyrir brottför https://www.airbaltic.com/en-ZZ/index

Bókunarnúmerið er P4BLQE - ATH ekki nota íslenska stafi.
Hægt að breyta um sæti og eða bæta við farangri gegn greiðslu.

Hvað er hægt að gera í Riga


Art Nouveau safnið er ansi magnað

Smakkaðu Black Balsam drykkinn

Slakaðu á í fallegum almenningsgarði, Gauja National Park er einstakur

Skelltu þér í andlitsbað eða nudd 


Lettnesku böðin eru eftirminnileg reynsla

Hjólatúr í gamla bænum með leiðsögn

Nytsamar upplýsingar

Veitingastaðir

Riga er rík af frábærum veitingastöðum, ferskum og góðum mat.
Fjöldi veitingastaða eru í göngufæri frá hótelinu, sem og góð grillhús, gatan Dzirnauvu iela er full af veitingastöðum, sem og eru eðal staðir á Antonijas iela götunni.

ATH það er mikið um að vera í borginni og við mælum því með að bóka fyrirfram.

Mælum með Vincents  / Chefs Corner  og Steiku Haoss - Einn þjóðlegur og öðruvísi Aragats   og svo er líka Rivera sem er dýr en þess virði.

Lido staðirnir, ódýrir og nokkrir í borginni.

Michelin mælir með nokkrum sjá HÉR

Vinsælar veitingakeðjur eru líka i göngufæri eins og  Vapiano, McDonalds og Burger King.

Hjól og Rafskutlur

Skemmtilegur ferðamáti til að kynnast borginni. Hjólaleigur eru víða og mjög auðvelt er að leigja hjól.
Einnig eru rafskutlur út um allt. 

Helstu rafskutluleigurnar eru BOLT, RIDE og SKOK

Neyðarnúmer í Riga

112 er neyðarnúmerið í Lettlandi

Klúbbar & barir í nágrenninu

Daiquiri Riga - theater bar - Vieta wine bar.
Coyote Fly - First - næturklúbbarnir eru flottir
Riga er rík næturklúbbum og skemmtilegum börum. 

Svo er alltaf gott að spyrja móttökuna þau vita hvað er núna best þar sem allt var að opna aftur eftir langan tíma.

Samgöngur

Í Riga er hægt að velja um ýmsan samgöngumáta, leigubílar, tramminn eða strætó.  Það er ekki Uber en það er Bolt.
Hlaupahjólin eru út um allt og er ódýr ferðamáti.
Strætó-arnir eru skemmtilegir og auðveldir, annars er allt í göngufæri.

Skemmtilegt að gera

Veistu ekki hvað þú átt að gera í Riga, kíktu á þessa síðu:  https://www.latvia.travel/en/city/riga-8  

Tungumála frasar

Takk! – Paldies
Einn bjór takk! - viens alus, paldies
Hæ!- Sveiki
Afsakið! - atvainojos
Please! - lūdzu
Reikninginn, takk! - Lūdzu, izsniedziet rēķinu
Talar þú ensku? - vai tu runā angliski

Verð hugmyndir € = ISK

 Gengið er um 140kr vs 1€

Bjór 0,5l  4€ - 560 kr. (innlendur)
Cappuchino 3 €- 420kr. 
Gosdrykkur 0,33l - 1,5€ - 210 kr. 
Vatn 0,33l - 1,3 €  - 190 kr. 
Út að borða fyrir 2 - meðalverð 40€ = 5.600kr (með víni)

*heimild numbeo.com

Veðurfar í September

Haustið er að detta inn, en hitinn heldur sér í krinum 16 gráðurnar helgina 16.-19.09.   En gott er að hafa góða yfirhöfn með sér, þó það séu plús gráður þá er getur verið kalt vegna rakans.  


Hótel

****
s: +371 67 772  222

Radisson Blu Latvija Conference & Spa Hotel er 4 stjörnu hótel í hjarta Riga og í göngufæri frá fallega gamla bænum. 
Herbergin eru rúmgóð og með ókeypis WiFi. Öll herbergin eru með minibar og te- og kaffiaðstöðu. Hvert gistirými er með nútímalegt baðherbergi með snyrtivörum, hárþurrku og annaðhvort baðkar eða sturtu.

Á jarðhæðinni er vinsæll bar þar sem er hægt að fá kaffi og samlokur, hann er opinn frá kl 09.00 - 01:00 en eldhúsið til 23:00. 
Á 26.hæð er Skyline barinn sem er opinn frá kl 15:00-02:00 og laugardögum frá kl 12:00-02:00, þar geta gestir notið drykkja, léttra veitinga og þar er frábært útsýni yfir sjóndeildarhring borgarinnar.
Veitingastaðurinn Esplanade sér um morgunverðinn, er með opið í hádeginu og á kvöldin til 22:30. Þar er boðið upp á alþjóðlega rétti fyrir alla.

Heilsulindin- og heilsumiðstöðin á staðnum, ESPA Riga, er með lúxushönnun, 18 metra sundlaug, gufuböð og eimböð og úrval af heilsulindarmeðferðum fyrir andlit og líkama.

Hótelið fær heildareinkunina 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu.