Fræðsluferð Brekkubæjar til Helsinki25. til 30. maí 2022
Fræðsluferð og skólaheimsóknir starfsmanna leikskólans Brekkubæjar í Helsinki 25. til 30. maí 2022
Helsinki sem kölluð hefur verið Dóttir Eystrasaltsins er þekkt fyrir stórfenglegan arkitektúr ekki síður en hönnun sem hefur haft áhrif um allan heim.
Helsinki er nútímaleg stórborg umlukin hafi, vötnum og fallegri náttúru. Helsinki er borg hönnunar og nýsköpunar með sérstakri samsuðu byggingarstíla. Hljóðlát og vingjarnleg með ýmsum furðulegheitum, finnskri gufu og eitt besta og framsæknasta skólakerfi heims.
Finnland er frægt fyrir glæsilega og hagnýta nútímahönnun og vörumerki Marimekko og Iittala eru heimsþekkt. Hönnunarsena Helsinki er ein sú líflegasta í heiminum í dag og hefur áhrif víða um heim. Í hönnunarhverfi Helsinki er gnægð af verslunum og vinnustofum og þar er einnig að finna hönnunarsafn borgarinnar.
Í matargerð leggja Finnar áherslu á staðbundnar afurður og sjálfbærni í landbúnaði þar sem árstíðarbundnar afurðir njóta sín best. Í Helsinki er fjöldi sælkeraveitingastaða, hefðbundinna veitingastaða og nýstárlegra bistróa og þar er einnig markaðshúsið Kauppahalli sem býður upp á fjölbreytni af finnskum sælkeravörum og árstíðabundinni uppskeru.
Náttúran í kringum Helsinki býður upp á fjölmarga möguleika til náttúruskoðunar og afþreyingar allan ársins hring. Hvort sem það er að sigla um eyjar umhverfis borgina, ganga um strendur, fallega garða eða villt skóglendi þá er ósnortin náttúru ávallt steinsnar frá borginni.
DAGSKRÁ
Brottför 25. maímiðvikudagur
Flug með Icelandair
Flug fram og til baka með Icelandair, 1 innrituð 23 kg taska og 10 kg handfarangur.
VIÐ KOMUNA TIL FINNLANDS ÞARF AÐ FRAMVÍSA BÓLUSETNINGARVOTTORÐI EÐA VOTTORÐI UM FYRRI SÝKINGU.
- vaccination certificates
- recovery certificate, or
- test certificate
Flug 25. maí 2022
Brottför 25. maí frá Keflavík kl. 07:30, lent í Helsinki kl. 14:00
Flugnúmer: FI 342
Mikilvægt að mæta tveim tímum fyrir brottför (kl. 05:30)
Rúta á hótel
Rúta frá flugvelli Helsinki til Original Sokos Hotel Presidentti. Fararstjóri tekur á móti ykkur á flugvellinum.
Koma á hótel
Mæting og innritun á
Original Sokos Hotel Presidentti.
Eteläinen Rautatienkatu 4
00100 Helsinki
Út að borða
Hópurinn fer saman út að borða eftir komuna til Helsinki og hótelsins.
Hyvää ruokahalua!
Karaoke barir Anna K
Annankatu 23
Manns´s Streeet
Mannerheimintie 12
Apollo Live Club
Mannerheimintie 16
ÓVISSUFERÐ26. maífimmtudagur
Miðbæjarganga
Kl. 15:15
Miðbæjarganga um Helsinkiborg með Áslaugu. Hún segir frá kennileitum, sögu og menningu og fær hópinn til að spreyta sig á einu og öðru sem tengist Finnlandi og finnsku.
Vetingahúsið Savotta
Kl. 20:00
Hópurinn á pantað borð á veitingahúsinu Savotta sem er beint á móti Senatti torginu og dómkirkjunni. Matsölustaðurinn leggur áhersu á hefðbundna finnska matargerð.
27. maíföstudagur
Skólaheimsóknir í Karis og Ekenäs
Kl. 08:30 Rúta leggur af stað frá hóteli í skólaheimsóknir dagsins.
Kl. 10:00 - 11:30 Daghemmet Solbacka heimsótt
Kvarnvägen 29,10300 Raasepori
Kl. 12:00 - 13:00 Hádegishlé og borðað á Restaurant KW, Högbergsgatan 12, Raasepori, https://www.restaurangkw.com/en/
Kl. 13:00-14:00 Daghemmet Karuselli, Pappilankatu 7, Raasepori 10300
Kl. 14:30-15:30 Daghemmet Skogsgläntan, Björknesgatan 41, 10600 Ekenäs
Kl. 15:30
Lagt af stað til baka til Helsinki og hótelsins.
Hópurinn er svo heppinn að hún Valborg María Vilhjálmsdóttir frá Egilsstöðum verður með ykkur ásamt Sólveigu í dag. Valla flutti til Finnlands árið 1993 og lærði til þroskaþjálfa í Vasa en hafði verið í leikskólakennaranámi við Åbo Akademi árin 1985-1988. Valla býr í skerjagarðinum með Marteini sínum og kisunum. Hún hætti að vinna í júní í fyrra og nýtur lífsins, málar steina, prjónar, siglir á bátunum þeirra og gerir sér glaðan dag með barnabörnunum.
Kl. 19:00
Sameiginlegur kvöldverður á veitingahúsinu Shelter, Kanavaranta 7, 00160 Helsinki
LÖYLY PURPUR28. maílaugardagur
Löyly saunur og veitingahús
Kl. 13:00 LÖYLY HELSINKI
Hópurinn á pantað í saunur í hinni stórkostlegu Löyly saunum og veitingahúsi við sjóinn og ströndina að
Hernesaarenranta 4, 00150 Helsinki
https://www.loylyhelsinki.fi/en/
Georgian cuisin
Kl. 19:00
Veitingahúsið Purpur
Rikhardinkatu 4
00130 Helsinki
https://www.purpur.fi/
Áhugaverður veitingastaður rekinn af leikaranum Ville Haapasalo
BARIR
Teatteri
Skemmtistaður
https://www.teatteri.fi/en/klubi/
Liberty or Death
Bar, Erottajankatu 5
Bar Loose, Annankatu 21
http://barloose.com/
29. maísunnudagur
Dagsferð til Tallinn
Kl. 07:30
Lagt af stað frá hóteli að höfninni / sporvagn rétt við hótelið og tekur 15 mínútur að fara á höfnina / kostar 2,80 evrur eða u.þ.b. 400 ísl. kr. /Fararstjórinn getur keypt miðana fyrir hópinn og kann leiðina
Kl. 08:00
Komið á höfnina og farið um borð. Allir þurfa að vera komnir um borð 30 mínútum fyrir brottför. Fararstjórinn sækir farmiða fyrir hópinn og sér til þess að allir fari um borð.
Kl. 09:00
M/s Finlandia ferjan lætur úr höfn í Helsinki
Kl. 11:15
M/s Finlandia kemur til hafnar í Tallinn
Kl. 17:00
Lagt af stað úr miðbæ niður að höfn frá kennileiti sem fararstjóri og hópur kemur saman um eftir komuna í bæinn, t.d. hótel Viro (ekki hægt að missa af því)
Kl. 17:30
Farið um borð í ferjuna. Allir þurfa að vera komnir um borð 30 mínútum fyrir brottför
Kl. 18:15 Opnað fyrir hópinn og aðra á Buffet þar sem hópurinn á frátekið fyrir 17 manns plús fararstjóra.
Kl. 18:30
M/s Finlandia ferjan lætur úr höfn í Tallinn
Kl. 21:00
M/s Finlandia ferjan kemur til hafnar í Helsinki og farið með sporvagni að hóteli, kostar 2,80 evrur eða u.þ.b. 400 ísl. kr. /Fararstjórinn getur keypt miðana fyrir hópinn og kann leiðina.
30. maímánudagur
Námskeið og fræðsla
Kl. 08:10 Útskráning af hóteli lagt af stað til Norrænu menningargáttarinnar, Kaisaniemenkatu 9, 00171 Helsinki
Kl. 08:30 – 09:30 Nordiska bokslukaren and other book- and reading related projects for kindergartens,
Mikaela Wickström, special librarian at the Nordic Culture Point
Kl. 09:30 – 12.30 Early childhood Education and Care in Finland- aims, hopes and challenges? The new aims for ECEC in Finland are focusing on holistic growth, high quality pedagogics, and the well-being of each child. How do we reach these goals, and which are the challenges?
Gun Oker-Blom, Fil.mag, M.A., consult and former director National Agency for Education in Finland.
Kl. 12:30
Lagt af stað til flugvallarins
Kl. 15:10 - 15:45
Flug frá Helsinki til Keflavíkur. Lent að staðartíma í Keflavík
Hvað er hægt að gera í Helsinki
Klettakirkjan er afar sérstök lúthersk kirkja í Helsinki og einstök listfræðileg hönnun. Kirkjan var grafin úr gegnheilum klettavegg og byggð neðanjarðar undir miklu hvolfþaki.
Uspenski dómkirkjan er mikil og reisuleg bygging sem gnæfir yfir sjónlínu Helsinki við hafnarbakkann. Ásamt auðkenndu hvítu lúthersku dómkirkju borgarinnar er Uspenski kirkjan eitt af helstu kennileitum Helsinki.
Nútímalistasafnið Kiasma í Helsinki sýnir það allra besta í finnskri nútímalist með reglulegum og síbreytilegum sýningum svo gestir koma iðulega aftur og aftur.
Suomenlinna er mikið virki sem Svíar reistu á nokkrum eyjum rétt fyrir utan Helsinki og þýðir nafn þess finnski kastalinn.
Í matargerð leggja Finnar áherslu á staðbundnar afurður og sjálfbærni í landbúnaði þar sem árstíðarbundnar afurðir njóta sín best. Í Finnlandi er nóg framboð af villibráð og ferskum sjávarafurðum ásamt villtum berjum og skógarsveppum sem finnsk matargerð nýtir á fjölbreyttan hátt.
Á hafnarsvæðinu er alltaf eitthvað gerast, bílasýningar, markaðstorg, siglingar og margt fleira.
Hvað er hægt að gera í Tallinn?
Urmull krikna flestra mörg hundruð ára gamalla eru að finna í Tallinn og nánasta umhverfi. Rétttrúnaðarkirkjan Alexander Nevsky Cathedral er reyndar undantekning þar á. Hér er upptalning á nokkrum kirkjum: Swedish St. Michael´s / Niguliste Museum and Church Bernt Notke´s Dance of Deth´ /Roman-Catholic Cathedral of
St. Peter and Paul Tallinn / Saint Catherine´s Church / Tallinn St. Mary´s Cathedral (Dome Church) and Bell tower.
Af þeim fjölmörgu áhugaverðu menningarsögulegu stöðum, byggingum og söfnum sem hægt er að skoða er vert að minnast á Town Hall Pharmacay sem er eitt elsta apótek í heimi. Það opnaði árið 1422 og var rekið af Burcharts fjölskyldunni frá 1581 til 1911. Það var einnig þekkt vegna þess að einn rússnesku keisarana pantaði lyfin sín þaðan.
Nútímalistasafnið Kumu Art Museum var opnað 18. febrúar 2006. Það var hannað af Pekka Vapaavuori og er að finna í Kadriorg garðinum. Í því er hægt að finna eistneska list frá 18. öld til dagsins í dag og reglulega eru gestasýningar erlendra listamanna.
Gamli bærinn með steinilögðum götum Vanalinn er á heimsminjaskrá UNESCO. Hann er umkringdur borgarmúrum frá miðöldum með 26 varðturnum.
Fjölmörg söfn, gallerí og handverksverslanir sem selja allt frá prjónavörum til rafskartgripa sem landsvæðið er þekkt fyrir.
Í Tallinn eru veitingahús á hverju strái og flóran eins margvísleg og veitingahúsin eru mörg. Við ráðhústorgið Raekoja Plats er yndislegt að sitja og virða fyrir sér mannlífið og gæða sér á villisveppasúpu að eistneskri gerð, gæða sér á rúgbrauði heimamanna og smakka á eistneskum drykkjum.
Á hafnarsvæðinu er mikið af sölubásum og smáverslunum með ódýran varning. Hins vegar er vert að mæla með Seaplane Harbour sem er mjög áhugavert, stórt og mikið safn um eistneska sögu á láði og legi. Safnið heitir á eistnesku Lennusadam mereemuseum.
Hótel
Original Sokos Hotel Presidentti****
Orignal Sokos Hotel Presidentti er einkar vel staðsett fjögurra stjörnu hótel. Margur Íslendingurinn hefur gist í einu af 483 herbergjum hótelsins.
Hótelið var tekið í notkun árið 1980 enn nýtur en mikilla vinsælda. Fyrir utan morgunverðarhlaðborð eru að finna Bistro Manu sem býður upp á hefðbundna bistro rétti með nútímalegu tvisti. Pub Adjutantti býður upp á einfalda barrétti og beinar útsendingar frá íþróttaviðburðum á stórum sjónvarpsskjá.
Hótelið er þátttökuaðili í verkefninu Goren Nogle (Græni lykillinn) en það mælir áhrifa gististaðarins á umhverfi og samfélags. Á hótelinu er innilaug, líkamsrækt og sauna, þráðlaust internet og á herbergjunum m.a. loftkæling og mínibar.
Hótelið fær heildareinkunn 8,5 booking.com
Fararstjórinn
Sólveig SveinbjörnsdóttirS. 663 4773
Sólveig Sveinbjörnsdóttir er fædd 1970 í Reykjavík og starfar sem framhaldsskólakennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja þar sem hún kennir teikningu og listasögu. Sólveig er myndlistarkona og leiðsögumaður í hjáverkum.
Hún bjó í sjö ár í Helsinki, lærði myndlist og hönnun í UIAH Helsinki (nú Aalto Academy) og útskrifaðist þaðan árið 2000. Við námsdvölina í Helsinki kynntist Sólveig menningu Finnlands vel. Eftir útskrift dvaldi hún í Finnlandi og vann við ýmiss menningar og kennslutengd störf, ferðaðist um og kynnti sér nágrannalöndin Svíþjóð, Eistland og Rússland.
Sólveig hefur áhuga á fólki, menningu og að ferðast á nýjar slóðir.
Tungumál: sænska, enska, finnska

Áslaug Hersteinsdóttir - Hölttä
Fræðsluferðir
GSM. +354 785 9887
Netfang. aslaug@tripical.com