
Til Lošinj í Króatíu
6. júní - 9. júní &7. júní - 10. júní 2025
Til Lošinj í Króatíu
6. júní - 9. júní &
7. júní - 10. júní 2025
Eyjan Lošinj leikur við öll skilningarvit, með jurtailmi og litadýrð, dýrindis mat, svalandi drykk og seiðandi sjávarnið. Hrífandi áfangastaður!
Lošinj er staðsett utarlega í Kvarnerflóa, ein fjölmargra eyja við strendur Króatíu. Þar standa nokkur þorp, en stærsti bærinn og aðal dvalarstaður ferðafólks er hinn dásamlegi Mali Lošinj, sem skartar meðal annars, að margra mati, fallegustu höfn í Adríahafinu. Ferðabransinn er engin nýlunda hér. Í lok 19. aldar fór staðurinn að vekja athygli sem frábær heilsuáfangastaður, þar sem loftslag Lošinj með sinni hreinu sjávargolu þótti - og þykir enn - gagnast afar vel gegn ýmsum öndunarfæra sjúkdómum. Í dag eru heilsuferðir þó bara brot af kökunni, enda er eyjan tilvalin fyrir alla sem leita að góðum og fallegum stað til að slaka á. Lošinj svarar því kalli svo sannarlega, hér er umhverfið allt mjög heillandi, gróðursæld mikil, strendurnar hreinar og
sjórinn fagurblár. Mali Lošinj er sjarmerandi bær, með gömlum byggingum á borð við St. Martins kirkjuna frá 15. öld. Þá má mæla með heimsókn í Museum Of Apoxyomenos
og skoða bronsstyttuna frá 1. öld sem þar er til sýnis. Í veitingum er heilmargt í boði, m.a. Michelin-stjörnu staðurinn Alfred Keller, auk alls kyns minni staða með fjölbreytta rétti á seðlinum. Auðvelt er að ferðast um og heimsækja smærri þorp eða ganga einhverjar af fjöldamörgu gönguleiðum sem í boði eru. Vinsælust þeirra er nefnd Footpath of Vitality, um 3 km ganga frá Mali Lošinj til smærri bæjar í grenndinni, Veli Lošij. Lošinj Aromatic Garden
er líka heillandi staður, sem sýnir hina miklu jurtaflóru sem finna má á þessari dásamlegu paradísareyju.
Hvað er hægt að gera í Lošinj
Njóttu sólsetursins uppi á Providenca hæðinni. Það er ógleymanlegt.
Farðu og heimsæktu höfrungana í The Blue World Marine í Veli Lošij. Þeir taka vel á móti þér!
Čikat Bay, Veli žal og Poljana eru allt gæða strendur sem mæla má með
Hverfið við höfnina í bænum Veli Lošij er litríkt, líflegt og ótrúlega skemmtilegt
Leigðu þér kajak, sigldu meðfram eyjunni og finndu þína einkaströnd eða vík
Kíktu í spa! Lošinj býr yfir alda gamalli reynslu af heilsubætandi meðferðum
Hvað er innifalið í ferðinni
Flug
Flug fram og til baka með leiguflugi, 1 innrituð taska 18 kg og 5 kg handfarangur sem passar undir sæti fyrir framan.
Flugtími er um 4 klst og 20 mín
Brottför
Brottför föstudaginn og laugardaginn, 6. og 7. júní, fyrri part dags og lent um miðjan dag á Rijeka alþjóða flugvellinum.
Heimför
Heimför seinni partinn 9. og 10. júní og lent um kvöld í Keflavík
Gisting
3 nætur á 4/5 stjörnu hóteli - Innifalið er morgunverður borgarskatturinn og wi-fi.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli 60-80 mín
Farastjórn
Þrír óendanlega hjálpfúsir og skemmtilegir fararstjórar frá Tripical
Tripical sér um allt úti
Árshátíðarkvöldið
Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina
úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikraftar
og búa til ógleymanlegt
kvöld
Hvað er hægt að gera úti?
Við getum boðið upp á dagsferðir
úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá
með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.
Við reddum öllu!
Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu
í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!
Ferðalottó-Tripical
Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical
Skemmtitékkinn í boði Tripical
Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frítt skemmtiatriði í ferðinni. Hópar sem telja 75 eða fleiri og eru með skipulagða árshátíð á vegum Tripical geta valið sér skemmtikraft hér af síðunni.
Viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir.
Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.
Hótel
Hotel Bellevue206 herbergi*****
Hotel Bellevue býður upp á glænýja heilsulindarstofu, 2 veitingastaði með Miðjarðarhafs- og japanska matargerð, setustofubar og 2 sundlaugar. Hótelið er staðsett í Mali Lošinj, sem er talið heilsudvalarstaður, umkringt furutrjám og býður upp á strönd með sólbekkjum.
Loftkæld herbergin eru með gervihnattasjónvarpi, minibar og öryggishólfi. Baðherbergið er með hárþurrku, baðslopp, inniskóm og strandhandklæði. Koddaúrval er í boði sé þess óskað.
Þar sem öll eyjan er þekkt fyrir græðandi loftslag, býður Hotel Bellevue upp á heilsulindarstofu með úrvali af snyrtivörum, heildrænum og læknisfræðilegum meðferðum sem framkvæmdar eru undir eftirliti sérfræðinga.
Gestir geta notið sérhönnuðra endurnýjunarmeðferða, streituvarnarprógramma til að vernda ónæmiskerfið, margs konar andlits- og líkamsnudds, slökunarsvæða, vetrargarðs og sjósundlaugar inni og úti.
Hótelið fær 9,3 í heildareinkunn á booking.com og 9,7 fyrir staðsetningu
Hótel
Hotel BellevueForsetasvíta1 herbergi*****
Forsetasvítan er með þrjú hjónaherbergi (með þremur aðgöngum), tvær stofur, fjórum baðherbergjum og gestaklósett, eldhús, tvo fataskápa og verönd.
Forsetasvítan er 185 fermetrar að stærð með verönd sem er 119 fermetrar. Gólf er parkett og teppalagt og baðherbergin eru með baðkari og sturtu, tveim vöskum, hárþurku og hágæða snyrtivörum.
Veröndin er útbúin tveim nudd heitapottum, legstólum úti húsgögnum.
Öll herbergin og stofan hafa landlínu þar sem hægt er að kalla eftir þjónustu, loftkælingu, gólfhita í baðherbergjum, LED háskerpusjónvörpum, einkabar, kaffi og te, öryggishólfi og ókeypis aðgang að WI-FI.
Verðin
749 990 kr
á mann í tvíbýli
Hótel
Hotel BellevueLúxus svíta4 herbergi*****
Lúxus svítan er með tveim hjónaherbergjum (með tveimur inngöngum), stofu, þremur baðherbergjum, fataskáp og verönd.
Lúxus svítan er 113 fermetrar að stærð með 87-80 fermetra verönd. Gólf eru parkett og teppalögð og baðherbergin eru með baðkari, teim vöskum, hárþurrku og hágæða snyrtivörum.
Veröndin er útbúin nudd heitapotti, sólstólum og útihúsgögnum.
Öll herbergin og stofan hafa landlínu þar sem hægt er að kalla eftir þjónustu, loftkælingu, gólfhita í baðherbergjum, LED háskerpusjónvörpum, einkabar, kaffi og te, öryggishólfi og ókeypis aðgang að WI-FI.
Verðin
664 990 kr
á mann í tvíbýli
Herbergi
Hotel BellevueBellevue svítur4 herbergi*****
Bellevue svítur eru með tveim hjónaherbergjum (með tveimur inngöngum), stofu, tveimur baðherbergjum, fataskáp og verönd.
Bellevue svítur eru 93 fermetrar að stærð með 52-57 fermetra verönd. Gólf eru parkett og teppalögð og baðherbergin eru með baðkari og sturtu, tveim vöskum, hárþurrku og hágæða snyrtivörum.
Veröndin er útbúin nudd heitapotti, sólstólum og útihúsgögnum.
Öll herbergin og stofan hafa landlínu þar sem hægt er að kalla eftir þjónustu, loftkælingu, gólfhita í baðherbergjum, LED háskerpusjónvörpum, einkabar eftir ósk (viðbót), kaffi og te, öryggishólfi og ókeypis aðgang að WI-FI.
Verðin
619 990 kr
á mann í tvíbýli
Herbergi
Hotel BellevueExecutive svítur4 herbergi*****
Executive svítur eru með hjónaherbergi, stofu, tveimur baðherbergjum, fataskáp og Hotel Bellevue Spa & Clinic listilega endurnærandi verönd.
Bellevue svítur eru 75 fermetrar að stærð með 45-53 fermetra verönd. Gólf eru parkett og teppalögð og baðherbergin eru með baðkari og sturtu, tveim vöskum, hárþurrku og hágæða snyrtivörum.
Veröndin er útbúin nudd heitapotti, sólstólum og útihúsgögnum.
Öll herbergin og stofan hafa landlínu þar sem hægt er að kalla eftir þjónustu, loftkælingu, gólfhita í baðherbergjum, LED háskerpusjónvörpum, einkabar eftir ósk (viðbót), kaffi og te, öryggishólfi og ókeypis aðgang að WI-FI.
Verðin
619 990 kr
á mann í tvíbýli
Herbergi
Hotel BellevueJunior svítur8 herbergi*****
Junior svítan er með hjónaherbergi, stofu, tveim baðherbergjum, fataskáp og svölum.
Lúxus svítan er 46 fermetrar að stærð með 25-35 fermetra svölum. Gólf eru parkett og teppalögð og baðherbergin eru með baðkari, teim vöskum, hárþurrku og hágæða snyrtivörum.
Veröndin er útbúin útihúsgögnum.
Herbergið og stofan hafa landlínu þar sem hægt er að kalla eftir þjónustu, loftkælingu, gólfhita í baðherbergjum, LED háskerpusjónvörpum, mini bar, kaffi og te, öryggishólfi og ókeypis aðgang að WI-FI.
Verðin
299 990 kr
á mann í tvíbýli
Herbergi
Hotel BellevueSuperior og Deluxe herbergi122 herbergi*****
Deluxe herbergin eru með hjónaherbergi með svölum sem snúa að sjónum eða að garðinum.
Deluxe herbergið er 38 fermetrar að stærð með 22-26 fermetra verönd. Gólf eru parkett og teppalögð og baðherberg er með baðkari, teim vöskum, hárþurrku og hágæða snyrtivörum.
Svalir eru útbúinar sólstólum og útihúsgögnum.
Öll herbergi hafa landlínu þar sem hægt er að kalla eftir þjónustu, loftkælingu, gólfhita í baðherbergjum, LED háskerpusjónvörpum, mini-bar, kaffi og te, öryggishólfi og ókeypis aðgang að WI-FI.
Verðin
249 990 kr
á mann í tvíbýli
Herbergi
Hotel BellevueAtrium herbergi63 herbergi*****
Atrium herbergin eru með hjónaherbergi sem snúa að garðinum.
Herbergið er 25 fermetrar að stærð. Gólf eru parkett og teppalögð og baðherberg er með baðkari eða sturtu, hárþurrku og hágæða snyrtivörum.
Öll herbergi hafa landlínu þar sem hægt er að kalla eftir þjónustu, loftkælingu, gólfhita í baðherbergjum, LED háskerpusjónvörpum, mini-bar, kaffi og te, öryggishólfi og ókeypis aðgang að WI-FI.
Verðin
239 990 kr
á mann í tvíbýli
75 000 kr
aukalega í einbýli
Tilboðið er fyrir 420 manns , flogið er í leiguflugi og er miðað við að minnst 80% sætanýting sé í flugi með leiguflugi.
Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.
Umsagnir fyrri hópa
Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir