Til Prag 
8. maí - 11. maí 2026
Tilboðið miðast við 50 manns og gengi dagsins gildir til 10.9.2025

Rómuð fyrir magnaðar hallarbyggingar, kirkjur brýr og torg, sín breiðu stræti og þröngu mystísku göngugötur. Stórborgin Prag rekur sögu sína aftur til 9. aldar og er í heild sinni eitt stórkostlegt listaverk!

Prag slapp nánast  heil frá sprengjuregni síðari heimsstyrjaldarinnar og því standa hinar fjölmörgu stórbyggingar þar í sinni upprunalegu mynd, sumar hverjar allt frá upphafsárum borgarinnar. Lengsta á Tékklands, Vltava rennur um borgina miðja og skiptir henni í tvennt.
Gamli bærinn er hjartað í sögulegum kjarna Prag og þar í kring má finna tignarlegar Barokkhallir og gotneskar kirkjur. Þar er einnig hin mjög svo merkilega Stjörnfræðiklukka (Astronomical Clock) sem byggð var á miðöldum, og Charles brúin frá 14. öld. 
Hér er sannarlega ekki aðeins boðið upp á augnakonfekt hvert sem litið er. Prag er þrátt fyrir aldurinn full af lífi, og næturnar einkennast af gleði og gáska. Tékkar eru þekktir fyrir bjórgerð, en auk þess eru snafsar af margvíslegu tagi afar vinsælir. Þjóðlegir réttir einkennast aðallega af kjöti og matarmiklum súpum. Rétt er að benda á að tékkneskur "burger" er ekki endilega það sama og við eigum að venjast, heldur nokkurs konar snitsel, stundum úr fiski, stundum kjöti og umvafið raspi. Hina klassísku borgara má þó auðvitað finna víða. 

Hvað er hægt að gera í Prag

Prag kastalinn er sá elsti í heimi skv. Heimsmetabók Guiness
Prague Dancing House er ótrúleg bygging sem hiklaust má mæla með 
Fyrir spennuþyrsta er mikið úrval af Escape Rooms í borginni, einna vinsælast er Puzzle Room Prague 
Strahov klaustrið stendur á hæð einni í borginni, stútfullt af sögu og gersemum  
Josefov gyðingahverfið er afar áhugavert
Alls kyns vín- og matarsmakk ferðir má finna hér og þar um borgina

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Icelandair
  • 23kg innritaður farangur
  • 5kg handfarangur

Flogið út

Flogið út frá Keflavík kl.7:20 og lent að staðartíma í Prag kl.13:05

Flogið heim

Flogið heim kl.14:00 og lent að staðartíma kl.15:55

Gisting

3 nætur á hóteli miðsvæðis í Prag (Með morgunmat)

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Prag 
  • ca 25 mín

Farastjórn

 Sé þess óskað - gegn gjaldi

(Kostar 8.900 kr./mann að bæta við, miðast við 50 manns)

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

 Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 1 heppið par/einstakling sem fær óvæntan glaðning frá Tripical 

Hótel

NH Collection Prague Carlo IV
*****

Þetta glæsilega hótel er staðsett í aðeins 10 mínútna göngufjarlægð frá Václavstorgi og býður upp á einstaka blöndu af sögulegum töfrum og nútímalegri hönnun. Hótelið samanstendur af tveimur byggingum – einni klassískri með háum loftum og annarri nútímalegri með stílhreinum innréttingum.

Herbergin eru loftkæld og vel búin með flatskjá, minibar og fallegum baðherbergjum með baðsloppum og snyrtivörum. Í heilsulindinni er innisundlaug, heitur pottur, gufubað, tyrkneskt bað og nudd.

Veitingastaðurinn 1890 býður upp á nútímalega tékkneska og alþjóðlega matargerð í sögulegu umhverfi. Ókeypis WiFi er í boði og örugg bílastæði í bílakjallara gegn gjaldi.

Neðanjarðarlestin er í aðeins 250 metra fjarlægð og Gamla bæjartorgið í 1,1 km fjarlægð.

Hótelið fær heildareinkunina 8,8 og 9,3 fyrir staðsetningu. 



Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.




Verðin

 169 990 kr

á mann í tvíbýli

244 990 kr

á mann í einbýli 

Hótel

Grandium Hotel Prague
*****

Grandium Hotel Prague er staðsett í hjarta Prag, rétt handan við hornið frá Wenceslas-torginu.
Herbergin eru glæsileg og nútímaleg með ókeypis WiFi, loftkælingu og te/kaffiaðbúnaði. 
Veitingastaðurinn og kaffihúsið á Grandium Hotel Prague býður upp á ljúffenga alþjóðlega sem og tékkneska matargerð. Gestir geta notið máltíða í glæsilega borðsalnum eða úti í sumargarðinum þegar veðrið er gott.
Grandium Hotel Prague býður upp á móttöku sem opin er allan sólarhringinn.
Gestir geta nálgast almenningssamgöngur í nokkurra skrefa fjarlægð. Þjóðminjasafnið í Prag og Betlehem-kapellan eru í 300 til 600 metra fjarlægð. 

Hótelið fær heildareinkunina 8,6 og 9,4 fyrir staðsetningu.   


Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

 144 990 kr

á mann í tvíbýli

210 990 kr

á mann í einbýli

Hótel

NH Prague City
****

NH Prague er staðsett í líflegu viðskiptahverfi Andel, rétt við sögulega miðbæinn. Hótelið samanstendur af tveimur byggingum sem tengdar eru með skemmtilegri kláfferju og býður upp á stórbrotið útsýni yfir borgina. Ókeypis þráðlaust net er í báðum byggingum og bílastæði eru í boði gegn gjaldi.

Herbergin eru rúmgóð, loftkæld og búin flatskjá, gervihnattarásum og minibar. Kaffi og te eru í boði án endurgjalds.

Á veitingastöðum hótelsins má njóta frábærrar matargerðar – hvort sem er inni eða á veröndinni með útsýni yfir alla borgina. Barinn er tilvalinn til að slaka á eftir viðburðaríkan dag.

Heilsulindin býður upp á líkamsrækt, gufu, sauna og nuddmeðferðir. Í nágrenninu er einnig hlaupaleið, tennisvellir, leikvellir og blakvöllur á Mrazovka-hæðinni.

Hótelið er aðeins í 5 mínútna göngufjarlægð frá neðanjarðarlest og sporvögnum, og um 15 mínútna akstur frá flugvellinum. Verslanir og afþreying eru rétt við hótelið.

Hótelið fær heildareinkunina 8,4 og 8,5 fyrir staðsetningu.



Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum. 

Verðin

 127 990 kr

á mann í tvíbýli

159 990 kr

á mann í einbýli

Hótel

Grandior Hotel Prague
*****

Grandior Hotel Prague – glæsilegt hönnunarhótel í miðbænum

Fimm stjörnu hótel með rúmgóð og björt herbergi, staðsett í hjarta Prag – steinsnar frá almenningssamgöngum og helstu kennileitum borgarinnar. Herbergin eru með loftkælingu, minibar, te-/kaffiaðstöðu og baðherbergi með L'Occitane-snyrtivörum, baðsloppum og gólfhita.

Á hótelinu er veitingastaður með alþjóðlegri matargerð, bar og morgunverður í boði daglega. Ókeypis WiFi og sólarhringsmóttaka eru til staðar.

Hótelið býður einnig upp á bjarta og vel búna sali fyrir árshátíðir, fundi og viðburði. Verð fyrir árshátíðarkvöldverð frá 15.900 kr. – innifalið er fordrykkur, þriggja rétta máltíð, drykkjapakki og salarleiga.

Hótelið fær heildareinkunina 8,8 og 9,5 fyrir staðsetningu.

Kvöldverður fyrir hópinn

*hægt er að óska eftir matseðlinum.

Verðin

 149 990 kr

á mann í tvíbýli

204 990 kr

á mann í einbýli

 ATH.

Boðið er upp á að velja á milli hótela sem skoða má hér að ofan. Ef einhverra hluta vegna það gerist að hótelið sé ekki í boði finnum við sambærilegt hótel á svipuðum stað.

Endanlegt verð liggur ekki fyrir fyrr en ferð hefur verið ákveðin og hægt er að bóka flug og hótel.



Umsagnir fyrri hópa

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

 

Júlía Björgvinsdóttir

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 895 9666

Netfang: julia@tripical.com