til Andorra

29. febrúar til 3. mars 2024  

Andorra er rétt um 480 ferkílómetrar að stærð og þar búa 78 þúsund manns. Stærðin er svona eins og Reykjavik, Kópavogur og Garðabær til samans. Hægt er að ganga í kringum Andorra á 5 dögum! 

Þótt íbúatala Andorra sé ekki há er alltaf mikið um að vera í þessu sjarmerandi fjallalandi. Þangað koma árlega um þrjár og hálf milljón ferðamanna og dvelja til lengri eða skemmri tíma, fyrir utan fjölda gesta frá nágrannaríkjunum Frakklandi og Spáni, en þaðan koma á hverju ári um 5 milljónir manns í styttri dagsferðir. Ferðaiðnaðurinn er allra stærsta tekjulind þjóðarinnar og hann einkennist í öllu af mikilli fagmennsku og gæðum. Andorra býður upp á stórkostlega aðstöðu til fjölbreyttrar skíðaiðkunar yfir vetrartímann, og á sumrin flykkist fólk þangað í hvers kyns gönguferðir og náttúruskoðun, enda umhverfið og útsýnið æði tilkomumikið og magnað.
Sólríkar hlíðar Andorra lúra milli Spánar og Frakklands. Svæðið á sér langa sögu í þjónustu við ferðamenn allt árið um kring og er án efa einn heppilegasti áfangastaðurinn fyrir blandaða skíðahópa. Dagskráin er svo sniðin að þörfum þeirra sem vilja skíða OG hafa gaman. Náttúrufegurðin, girnilegur matur, töfrandi viðmót heimafólks, hagstætt veður og lágt verðlag gera dvölina ógleymanlega.


Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Áætlunarflug með Play til og frá Barcelona með innritaðri 20 kg tösku og handfarangri (5kg).

Flogið út

Brottför 29. febrúar 2024 frá Keflavík kl: 15:30 og lent í Barcelona kl: 20:50.

Flogið heim

Heimför 3. mars 2024 frá Barcelona kl: 21:50 og lent í Keflavík kl: 01:30.

Gisting

3 nætur á 4ra stjörnu hóteli með morgunverði.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli - 3,5 klst akstur

Farastjórn

Einn skemmtilegur og og óendanlega hjálpfús fararstjóri frá Tripical.

Hvað er hægt að gera í Andorra

Notaðu tækifærið og smakkaðu rétti heimamanna, eins og trinxat og escudella, bæði gómsætir pottréttir.
Caldea Spa er ein af stærstu heilsulindum Evrópu. Frábær staður til að slaka á!
Naturlandia er vinsæll ævintýragarður sem býður upp á afþreyingu eins og zip-fóðrun, rennibrautaferðir og dýraskoðun.
Mótorhjólasafnið Carmen Thyssen er mjög töff. Þar má skoða safn af vintage mótorhjólum.
Ef þig langar að prófa paragliding, þá er Andorra stórkostlegur staður fyrir þess háttar.
Casa de la Vall er glæsileg 16. aldar bygging sem vert er að skoða.

Ferðalottó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út heppin pör/einstaklinga sem fá óvæntan glaðning frá Tripical.

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við bjóðum þeim hópum sem halda árshátíð í gegnum Tripical 
frían skemmtikraft til að gera kvöldið ógleymanlegt!


Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan*

*Með fyrirvara um að skemmtikrafturinn sé laus þá daga sem árshátíðin er :)


Hótel

****

Hotel Starc by Pierre & Vacances Premium er staðsett á besta stað í miðbæ Andorra la Vella og býður upp á loftkæld herbergi með ókeypis WiFi, einkabílastæði og herbergisþjónustu. Gististaðurinn er með bar og veitingastað sem framreiðir Miðjarðarhafsmatargerð. Naturlandia er í 16 km fjarlægð og Meritxell-helgistaðurinn er 9 km frá hótelinu.

Herbergin á hótelinu eru með fataskáp. Sumar einingar á Hotel Starc by Pierre & Vacances Premium eru með sérbaðherbergi með sturtu og ókeypis snyrtivörum og borgarútsýni. Öll herbergin í gistirýminu eru með sjónvarp og hárþurrku.

Gestir á Hotel Starc by Pierre & Vacances Premium geta notið afþreyingar í og í kringum Andorra. la Vella, eins og gönguferðir, skíði og hjólreiðar.

Estadi Comunal de Aixovall er 2,3 km frá hótelinu, en Golf Vall d'Ordino er 7,5 km í burtu. Næsti flugvöllur er Andorra-La Seu d'Urgell-flugvöllur, 26 km frá Hotel Starc by Pierre & Vacances Premium.

Hótelið fær heildareinkunn 9,1 og 9,8 fyrir staðsetningu á booking.com.

Verðin

 149 990 kr

á mann í tvíbýli

45 000 kr

aukagjald í einbýli

Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 120 manns, ekki hafa verið tekið frá flug og hótel. Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519-8900

GSM. 848 1520

Netfang. arnar@tripical.com