til Stokkhólms 
11. september til 15. september 2024

Er ekki kominn tími til að heilsa upp á sænsku náfrændur okkar og  skoða þeirra skemm-tilegu höfuðborg. Slík heimsókn mun koma þér skemmtilega á óvart.  Það er meira í Stokkhólmi en bara kjötbollur og kartöflu-mús!

Fegurð Stokkhólms er að hluta til komin frá því að hún dreifist milli 14 eyja sem eru samtengdar með myndrænum brúm, borgin er oft kölluð Feneyjar norðursins. Svíþjóð er næstum samheiti fyrir nýsköpun og hönnun (þ.e. meira en bara Ikea-vörur) og Svíar er með gott auga fyrir fegurð. 
Að kanna fjölbreytileika hverfanna er einstaklega gaman. Helsta aðdráttaraflið fyrir ferðamenn er Gamla Stan (gamli bærinn) sem hefur verið hjarta bæjarins frá miðöldum. Svæðið er sívinsælt og lifandi og að sjá hellulögð og mjó strætin, regnbogalituðu húsin og falleg torgin er  algjörlega heimsóknarinnar virði.
Verslanir við Designtorget eru stútfullar af verkum eftir nýja hönnuði og selja skemmtilegar og flottar skandinavískar vörur á góðu verði.
Svíar eru matgæðingar og má finna fullt af skemmtilegum matarvögnum og ba karí af gamla skólanum, óhefluð kaffihús en í borginni blómstrar líka nýnorræn matargerð og Michelin-stjörnuveitingastaðir bíða eftir heimsókn. Í Stokkhólm eru einnig skórkostlegar mathallir og markaðir til að ráfa um, og einn sá besti - Saluhall - er í hinu fína Östermalm-hverfi.  
Stokkhólmur er sannkallað augnayndi.


Hvað er hægt að gera í Stokkhólmi  

Abba safnið er alveg þess virði að skoða ef ekki þá er Vasasafnið eitthvað sem allir ættu að skoða.
Gamla Stan, gamli miðaldarbærinn sem er einn fallegasti hluti borgarinnar. Fullur af kaffihúsum og verslunum.
Farðu í göngutúr um Stortoget torgið og skoðaðu  frægustu rauðu og gulu hús borgarinnar. Hér er einnig safnið tileinkað Nóbelsverðlaunahöfunum.
Dómkirkjan Storkyrkan og þýðir frábær kirkja. Það er elsta musteri Stokkhólms frá 1279. Krýningar, konungleg brúðkaup og svo fr.....
Það er skemmtilegt að fara í bátsferð og sigla um eyjarnar, um Feneyjar norðursins!
Drottningholm konungshöllin er ótrúlega falleg og er á alheimsminjaskrá UNESCO

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Beint flug með Icelandair og Play, 1 innritaðri 20 kg tösku og 10kg  handfarangur.

Brottför

Brottför 1 - Play
Brottför miðvikudeginum 11. semtember frá Keflavík kl. 06:10, lent í Stokkhólmi kl. 11:25
Brottför 2 - Icelandair
Brottför miðvikudeginum 11. semtember frá Keflavík kl. 07:35, lent í Stokkhólmi kl. 12:45

Heimför

Heimför 1 - Play
Heimför sunnudeginum 15. september frá Stokkhólmi kl. 12:25 lent í Keflavík kl. 13:45
Heimför 2 - Icelandair
Heimför sunnudeginum 15. september frá Stokkhólmi kl. 22:35 lent í Keflavík kl. 23:50

Gisting

4 nætur á 4  stjörnu hóteli. Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútuferðir til og frá flugvelli í Stokkhólmi

Farastjórn

Einn óendanlega hjálpfús og skemmtilegur fararstjóri frá Tripical.

Tripical sér um allt úti

Árshátíðarkvöldið

Við erum snillingar í að skipuleggja árshátíðina úti, bóka sal, velja matinn, skemmtikrafta og búa til ógleymanlegt kvöld

Hvað er hægt að gera úti?

Við getum boðið upp á dagsferðir úti sem hópurinn velur úr og bókar í gegnum sölukerfi Tripical.
Einnig setjum við upp dagskrá með meðmælum af veitingarstöðum, börum & vinsælum ferðamannastöðum.

Við reddum öllu!

Sérðfræðingar Tripical hafa áratugareynslu í að skipuleggja árshátíðarferðir hópa!

 Ferðalóttó Tripical

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 1 heppið par eða einstakling
sem fær óvæntan glaðning frá Tripical í ferðinni.

Hótel

(staðfest verð)
****

Hótelið er staðsett miðsvæðis í Vasastan-hverfinu í Stokkhólmi og í 5 mínútna göngufjarlægð frá St. Eriksplan-neðanjarðarlestarstöðinni. Það býður upp á ókeypis WiFi og breskt veitingahús og krá á staðnum.
Herbergin á Elite Palace Hotel eru nútímaleg og eru öll með kapalsjónvarp, minibar, skrifborð og setusvæði.
Á staðnum er kráin Bishop´s Arms og þar er boðið upp á à la carte hádegis- og kvöldverðarmatseðil með alþjóðlegum réttum ásamt fjölbreyttu úrvali af bjór og viskí. Hið vinsæla morgunverðarhlaðborð Elite Palace er borið fram í aðskildum matsal.

Nuddmeðferðir eru í boði á staðnum. Gestum Elite Palace stendur til boða ókeypis aðgangur að líkamsræktarstöð á staðnum.
Á sunnudögum er morgunverður framreiddur til klukkan 12:00 og útritun stendur yfir til 18:00 nema á háannatíma.
Starfsfólk hótelsins getur mælt með mörgum veitingastöðum og áhugaverðum stöðum í nágrenninu.

Hótelið fær heildareinkunn 8,2 og 8,1 fyrir staðsetningu á booking.com

Árshátíðarkvöldverðir, hótelið býður upp á fallega sali þar sem hægt er að vera með kvöldverði.  Salirnir leigjast með/án tæknibúnaðar   Hægt er að fá 3-4 rétta kvöldverði frá 9.500, léttur drykkjarpakki með kvöldverðinum  frá 4.500kr  (1/2 fl víni, gos, vatn og kaffi.

Verðin

134 990 kr 

á mann í tvíbýli

50 000 kr 

aukagjald í einbýli

   Hótel

   ****

Downtown Camper by Scandic er staðsett í miðbæ Stokkhólms, það er aðeins í 8 mínútna göngufjarlægt frá Stockholm Central Station lestarstöðinni. 

Inn á öllum herbergjum má finna sjónvarp, ísskáp og frítt Wifi. 

Inn á hótelinu eru veitingarstaðir og barir. Einnig má finna saunu, gym og sundlaug á hótelinu. 

Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 9,6 fyrir staðsetningu á booking.com

Verðin

144 990 kr 

á mann í tvíbýli

55 000 kr 

aukagjald í einbýli

 Tilboðið sýnir verðhugmyndir og miðast við 50 manns.

Endalegt verð liggur fyrir þegar ferð er staðfest og hægt er að bóka flug. Staðfestingargjald þarf að greiða um leið og ferð er ákveðin svo hægt sé að tryggja flug og hótel. 


Umsagnir fyrri hópa 

Smelltu hér á hnappinn til að sjá umsagnir ánægðra viðskiptavina Tripical!
Skoða umsagnir

Arnar Magnússon

Fyrirtækjaferðir

S. 519 8900

GSM. 848 1520

Netfang: arnar@tripical.com