Leikskólinn Kópahvoll til Kraká25. til 29. maí 2022
Borgin Kraká er af mörgum talin ein sú fallegasta í Evrópu og situr alla jafna á toppnum yfir áhugaverðustu áfangastaði í heiminum.
Kraká stendur við árbakka Vistulu, og sögu hennar má rekja aftur til sjöundu aldar! Fornar sagnir segja frá því hvernig borgin óx og dafnaði eftir frækilegan sigur á miklum dreka sem bjó í helli í nágrenninu og hrelldi og drap íbúa með reglulegum heimsóknum. Hvað sem hæft er í þeim lysingum, er það staðreynd að goðsagnakennt og seiðmagnað andrúmsloft svífur yfir þessari mögnuðu borg. Wawel kastalinn er eitt af stærri nafnspjöldum borgarinnar, sem og gamli bærinn með sínum aldagömlu kirkjum og áhugaverðu söfnum. Þá má ekki gleyma hinu mikla Rynek Główny, sem er hvorki meira né minna en stærsta markaðstorg Evrópu.
Gamli bærinn í Kraká er eitt af friðarsvæðum UNESCO. Það er ekki að ástæðulausu og við mælum hiklaust með skoðunarferð þangað. Þar má finna hundruði veitingastaða.
Íbúafjöldi er 760.000 en hafa ber í huga að um það bil 8 milljónir búa í 100km radíus í kringum borgarmörkin.
Borgin er þekktust fyrir glæsileika sinn, stórbrotna sögu og menningu, Kraká er fullkomin borg til þess að slaka á, ganga í rólegheitum um götur og hverfi og leyfa skilningarvitunum að draga þig frá hversdagslegu amstri yfir í núið.
Hvað er innifalið í ferðinni
Beint Flug
Flogið er beint til kraków með Wizz Air. 1 innrituð taska (20 kg)
og handfarangur (40x30x 20 cm)
Brottför
Brottför 25. maí kl.10:15
Lent í kraków kl 16:20
Heimkoma 29. maí kl.14:10
Lent í Keflavík kl. 16:30
Gisting
4 nætur á 4ra stjörnu hóteli.
Rútur
Rútuferðir til og frá flugvelli í Kraká
Hvað er hægt að gera?
Verksmiðja Oskars Schindler er mögnuð
Wieliczka saltnáman er ein sú elsta og stærsta í heimi.
Matarmenninginn Pólands er fjölbreytt og áhugahverð. Hver vill ekki smakka flaki, tatar, kotlet schabowy, kaszanky eða pierogi?
Heimsæktu Wawel kastalann og stærsta markaðstorg Evrópu Rynek Glowny
Gamli bærinn er, eins og sagt er, algjört möst!
Stutt er að fara til Auschwitch-Birkenau
Hótel
****
Vienna House Andel's Cracow er nútímalegt, vel staðsett og vel búið 4 stjörnu hótel.
Fjölbreytt morgunverðarhlaðborð er framreitt á hverjum morgni á Mavericks Restaurant en þar er hægt að fá rétti í kaliforníustíl með asískum, mexíkóskum og evrópskum áhrifum. Á kvöldin geta gestir slakað á og fengið sér drykk á barnum Smok.
Herbergin á eru með flatskjá og öryggishólf fyrir fartölvu. Sum eru staðsett á efri hæðum og eru með víðáttumiklu útsýni yfir fallega gamla bæinn.
Vienna House Andel's Cracow er staðsett í hjarta borgarinnar, skammt frá aðallestarstöðinni og Galeria Krakowska, aðalverslunarmiðstöðinni í Kraká.
Hótelið fær heildareinkunina 9.4 og 9.7 fyrir staðsetningu á Booking.com
Verðin
165 990 kr
á mann í tvíbýli
35 000 kr
aukagjald í einbýli
Verðin
159 990 kr
á mann í tvíbýli
30 000 kr
aukagjald í einbýli
Miðvikudagur 25. maí 2022
Komudagur
10:15 Brottför frá Keflavík
16:20 Lent í Kraká að staðartíma
17:20 Rútur frá flugvelli á hótel og innritun
18:00 Frjáls tími
Fimmtudagur 26. maí
uppstigningadagur
NÁMSKEIÐ t.d. milli Kl. 10:00 - 14:00/16.00
Frjáls tími
Föstudagur 27. maí
Skólaheimsóknir (drög að skólaheimsóknardegi)
Kl. 08:00 Mæting í anddyri hótels
Kl. 08:15 Rúta ekur áleiðis til Leikskóla 1
Kl. 09:00 Heimsókn í Leikskóla 1
Kl. 12:00 Hádegishlé
Kl. 13:30 Heimsókn í Leikskóla 2
Kl. 16:00 FRJÁLS TÍMI
Laugardagur 28. maí
Frjáls dagur
Sjá fyrir ofan hvað er hægt að gera ef óskað er eftir skipulögðum ferðum
Sunnudagur 29. maí
Brottfarardagur
11:30 Útritun af hóteli og ekið frá hóteli aðflugvellinum Johan Paul II Kraków-Balice International
14:10 Flug frá Kraká til Keflavíkur.
16:30 Lent í Keflavík að staðartíma.
*Með fyrirvara um breytingar