til 
Bilbao
06.-09.10. & 07.-10.10.2022

Í Bilbao blandast nútíð og fortíð svo skemmtilega saman að borgin hefur oftar en einu sinni hlotið verðlaun fyrir hönnun sína og skipulag. Sannarlega ein af áhugaverðustu borgum Spánar.

Borgin Bilbao er staðsett á norðurhluta Spánar, 16 km frá hafi, með um 350.000 íbúa. Innfæddir nefna hana oft holuna (botxo), sem stafar af staðsetningu hennar í miðju tígurlegs fjallagarðs sem umvefur hana með sínum grænu fallegu hlíðum. Þótt þar finnist menjar allt frá 11. öld er aldur hennar rakinn til 14. aldar og þá hófst hennar blómaskeið. Gamli bærinn er dásamlegur minnisvarði þess tíma og þar er ánægjulegt að spássera hinar svokölluðu ,,Sjö götur“ (Las 7 Calles) og uppgötva fornar helgimyndir og byggingar. Þá er Bilbao lifandi sönnun þess að matur er list. Úrvalið af veitingastöðum,  allt frá litlum götustöðum til fínni veitingahúsa er enda-
laust, og rétt að benda á að fjöldi Michelin stjörnustaða er hér með því mesta í heimi.
Ein af stærri rósum borgarinnar er Guggenheim safnið sem opnað var 1997. Í kjölfarið var lagður metnaður í byltingarkenndan og sérstakan byggingarstíl sem sjá má í mörgum risabyggingum sem hannaðar eru af þekktustu arkitektum heimsins. En Bilbao eru auk þess mjög græn borg, með mikið af yndislegum útisvæðum, eins og garðinn Doña Casilda de Iturrizar sem er tilvalinn til að slaka á og njóta náttúru og afslappandi umhverfis. Bilbao er þannig einstök blanda af gömlu og nýju, rólegheitum og líflegri borgarstemmingu. 

Hvað er hægt að gera í Bilbao?

Plaza Nueva og göturnar í kring eru fullar af annasömum börum sem bjóða upp á fræga pintxos: litla, ljúffenga bita af mat
Hinir töfrandi klettar Getxo eru í rúmlega 30 mínútna fjarlægð með neðanjarðarlestinni.
La Ribera markaðurinn er staðsettur í glæsilegri byggingu og þar geturðu látið elda fyrir þig hráefnið sem þú velur þér
S. James dómkirkjan er gullfalleg 14. aldar bygging sem er vel þess virði að skoða

Taktu Artxanda kláfferjuna upp í fjall, klassískur valkostur til að fá útsýni yfir Bilbao
Fótboltaáhugafólk ætti að heimsækja San Mamés Museum and Statium

Hvað er innifalið í ferðinni

Flug

Flug fram og til baka með leiguflugi Tripical, 1 innrituð taska 20 kg og 5 kg handfarangur.

ATH flugverð getur breyst v heimsmarkaðsverðs á eldsneyti eins er lítið framboð af vélum og verð há

Flug 

Hópur 1 - 6.-9. okt - 150 manns 

Hópur 2 - 7.-10.okt - 158 manns

Hótelin eiga erfitt með að breyta þessum tölum og setja stærri hlutann í eina vél.  En það er í vinnslu vonum að það gangi upp.

Flugtímar

06.okt/7.okt - kl 10:00 frá Keflavík og lent í Bilbaó kl 16:00 
Flugnúmer QS4312 - Flugtími 3,5-4 klt

9.okt/10.okt - kl 16:45 frá Bilbaó og lent í Keflavík kl 18:50
Flugnúmer QS4314 - Fugtími 3,5-4 klt

ATH flugtímar geta breyst örlítið.

Gisting

3 nætur á 4 stjörnu hóteli í miðborg Bilbao Innifalið er morgunverður og wi-fi.

Rútur

Rútur til og frá flugvelli - 15-20 mín

 Íslensk farastjórn

Tveir skemmtilegir og óendanlega hjálpfúsir fararstjórar.

 Svítu-lottó

Við viljum magna upp stemninguna fyrir brottför með því að draga út 3 einstaklinga/pör sem fá fría uppfærslu á herberginu sínu og gista því í  betra herbergi (Svíta, Jr Svíta, Deluxe herbergi).  Nema þið viljið að forstjórinn fái herbergin!

Skemmtitékkinn í boði Tripical

Við viljum gera árshátíðarferðina ógleymanlega! Þess vegna bjóðum við hópnum þínum upp á frí skemmtiatriði í ferðinni. Hópurinn þarf að telja 50 manns eða fleirri og viðkomandi skemmtikraftur þarf að vera laus á þeim dagsetningum sem óskað er eftir. 
Þar sem ykkar hópur er um 300 manns bjóðum við ykkur 3 skemmtitékka

Umsamið að Veritas greiði aukalega 200.000 og Eva Ruza og Hjálmar skemmta - Veritas sá um bókun

Hægt er að kynna sér hvaða skemmtiatriði er hægt að fá með í ferðina með að ýta á hnappinn hér fyrir neðan.

Hótelið

****

Hotel Ercilla er nútímalegt hótel staðsett í miðbæ Bilbao. Það býður upp á líkamsræktarstöð og stílhrein gistirými með flatskjásjónvarpi með gervihnattarásum, ókeypis Wi-Fi Interneti og sérbaðherbergi.

Bar Americano býður upp á yndislegan morgunverð, hádegisverð og kvöldverð. Sérstaða þeirra er Bask frændi og kokteilar.
La Terraza er kokteilbar sem hefur yndislegt útsýni til Bilbao og býður einnig upp á mat.

Hið glæsilega Guggenheim-safn Bilbao er í 15 mínútna göngufjarlægð. Það er neðanjarðarlestarstöð handan við götuna frá hótelinu sem tengir þig við ströndina á innan við 20 mínútum

Hótelið fær heildareinkunn 8,7 og 9,5 fyrir staðsetningu á booking.com

Hótelið getur tekið mest 250 manns í sitjandi kvöldverð.

06.10. - 10 sgl og 78 dbl
07.10. - 20 sgl og 156 dbl 
08.10.  -20 sgl og 156 dbl 
09.10. - 10 sgl og 78 dbl 

Verðin

 176 990 kr

á mann í tvíbýli

28 000 kr / auka 7.000 fyrir DSU

aukagjald í einbýli

Brottför eftir:

Days
Hours
Minutes
Seconds

Brottfööööörrrrr.....


Ásthildur Ólafsdóttir (Ásta)  

Fyrirtækjaferðir
S. 519-8909
GSM. 820-8991